Hagnýtur hugbúnaður |
ZoomIt
ZoomIt er handhægur, ókeypis hugbúnaður fyrir þá sem nota tölvu með Windows stýrikerfi til kynninga eða kennslu á hugbúnaði eða vefbundinni þjónustu.
ZoomIt, eins og nafnið gefur til kynna, stækkar allt sem birtist á skjánum og gerir notanda að auki kleift að skrifa og teikna yfir skjámyndina til frekari útskýringar.
Forritið er ein keyrsluskrá (sótt á zip-sniði) og til að virkja það þarf að tvísmella á skrána.
ZoomIt: Leiðbeiningar
Snipping Tool (tekur skjámyndir)
Snip Editor – Windows 10
Sway – Office 365 og Snipping Tool – Leiðbeiningar
Þýðingarvél – Microsoft
Trello
Margir eru að drukkna í verkefnum þessa dagana og gott að setja upp þessa verkefnastjórnunarsíðu.
Þú stofnar þína eigin síðu og getur síðan boðið öðrum þátttöku í ákveðnum verkefnum.
Best er að opna Trello í gegnum Chrome vefskoðarann.
Hér er kynning á hvernig Trello virkar.
Foxit PDF Reader
Foxit PDF Reader er ókeypis forrit sem býður upp á fleiri möguleika í yfirlestri og leiðréttingu skjala en Adobe Readers.
Hægt er að skrifa inn athugasemdir, setja inn tal sem athugasemd og ýmislegt fleira gagnlegt.
Screenr
Screenr er frábært tæki til að búa til lítil myndskeið. Það er ókeypis og einfalt að læra á það.
Gott er að stofna síðu á YouTube til að geyma myndskeiðin.
Passa þarf upp á allar stillingar til að takmarka aðgengi og sleppa við auglýsingar.
Google Docs
Miðlæg skjöl á netinu, aðgangur og samvinna í rauntíma. Hentar mjög vel í samvinnuverkefni meðal nemenda.
Viðkomandi þarf að vera með póstfang á Gmail.com
Kahoot
Kahoot er vefsíðasíða sem býður upp á gagnvirkar umræður, kannanir og próf á þægilegan og aðgengilegan hátt. Stjórnandi stofnar aðgang sem er ókeypis á https://create.kahoot.it/. Prófin eru góð leið til að vinna með þekkingarmarkmið, bæði sem upprifjun, kennslu og eins sem próf. Ef búa á til próf semur stjórnandinn spurningar og setur inn fjóra valmöguleika, þar af einn réttan. Einnig er hægt að láta nemendur semja sjálfa spurningar og svör. Þegar prófið er tilbúið er það opnað og fær stjórnandinn lykilorð (game pin).
Nemendur fara svo inn á https://kahoot.it/#/ í sínu tæki (tölvu, snjallsíma, spjaldtölvu) og slá inn lykilorðið, skrá nafn (hægt að setja inn gælunafn) og svo hefst keppnin. Á skjánum hjá þeim birtast fjórir kassar (svarmöguleikarnir) í mismunandi litum.
Á skjá stjórnandans, sem varpað er upp á skjá, birtist spurningin, svarmöguleikarnir og svo niðurstöður. Því sneggri sem þátttakandinn er að velja því fleiri stig fær hann. Niðurstöður koma í stöplaformi eftir hverja spurningu (hversu margir völdu hvern svarmöguleika), rétt svar og svo topp fimm stigahæstu þátttakendur. Í lokin er stigahæsti þátttakandinn sigurvegari. Hægt er að hlaða niðurstöðum niður, t.d. ef notast á við þær í námsmati og einnig deila þeim.
Kostir: Virkjar auðveldlega og skemmtilega keppnisskap þátttakenda
Gallar: Krefst nettengingar og nokkurs fjölda snjalltækja (geta samt 2–3 verið saman með tæki)
Spurningar og svör hafa takmarkaðan stafafjölda (kannski frekar kostur en galli?)
Kahoot á YouTube
Nokkrir góðir vefir sem að gagni koma við ritgerðarskrif:

- Kahoot virkar þannig að hópur eða kennari skráir spurningar inní forritið.
Hægt er að velja um hvort gerð er spurningakeppni, skoðanakönnun eða umræðuþráður.
Þegar spurningarnar eru tilbúnar fer hópurinn inn á síðuna í símanum sínum, spjaldtölvu eða tölvu og skráir inn pin-númer og velja sér notendanafn.
Þegar allir eru tilbúnir setur kennarinn spurninguna upp á skjáinn og nemendur velja svarmöguleika.
Nemendur geta ekki séð valmöguleikana við spurningunum á sínum tækjum, heldur birtast þeir aðeins uppi á skjánum.
Því er nauðsynlegt að vera í tímanum til að taka þátt.
Í spurningakeppni fá nemendur stig eftir því hvort þeir hafa svarað rétt og hversu fljótt.
Spurningarnar koma ekki upp strax á eftir hverri annarri heldur þarf kennarinn að velja að birta næstu spurningu, hann getur því tekið hlé á milli hverrar spurningar og rætt hana betur.
Skoðanakönnunin virkar einfaldlega þannig að kennarinn gerir eina eða fleiri kannanir og hver og einn nemandi svarar hverri könnun fyrir sig.
Þegar allir nemendur eru búnir að svara spurningunni kemur upp súlurit með útkomunni.
Þegar allar spurningarnar eru kmnar getur kennari sótt allar niðurstöðurnar.
Umræðuþráður er nokkurn veginn eins og skoðunarkönnun – nema þar getur kennari aðeins sett inn eina spurningu
Kostir: Virkjar auðveldlega og skemmtilega keppnisskap þátttakenda
- Notendavænt
- Fljótlegt og þægilegt í notkun
- Góð leið til að virkja nemendur
- Heldur athygli nemenda vel
Gallar: Krefst nettengingar og nokkurs fjölda snjalltækja (geta samt 2–3 verið saman með tæki)
Spurningar og svör hafa takmarkaðan stafafjölda (kannski frekar kostur en galli?)
Kahoot á YouTube
Nokkrir góðir vefir sem að gagni koma við ritgerðarskrif:
- Skrambi: Yfirlestrarforrit
- Beygingarlýsing íslensks nútímamáls: Á vefnum er hægt að fletta upp beygingum orða
- Snara: Á vefnum er að finna margar rafrænar orðabækur, t.d. samheitaorðabók
Því miður er aðgangur ekki endurgjaldslaus,en yfirleitt er hægt að komast á hann frítt í skólum sem kaupa aðgang - Á dreifnámsvef FB eru leiðbeiningar um skráningu heimilda og sniðmát fyrir ritgerðir